Kynni unglinga af vinsælum ferðamannastöðum: Frístundir, ferðalög og menntun

Netla(2022)

Cited 0|Views1
No score
Abstract
Ferðamennska og tómstundir hafa fengið æ meira vægi í daglegu lífi fólks síðustu áratugi í kjölfar vaxandi velmegunar og breytinga á vinnumarkaði. Aðgengi að ferðamennsku og margs konar tómstundum er ólíkt og fer meðal annars eftir efnahagslegri stöðu fólks. Hérlendis er lítið vitað um samspil félagslegrar stöðu, ferðamennsku og tómstundaiðkunar. Markmið þessarar greinar er að varpa ljósi á þátttöku unglinga í ferðamennsku m.t.t. félagslegra og efnahagslegra þátta og ræða í samhengi við ferðahegðun Íslendinga innanlands, félagslega ferðamennsku og menntun. Notuð eru gögn úr HBSC-rannsókninni Heilsa og lífskjör skólabarna frá árinu 2017–2018 þar sem 6717 börn og unglingar svöruðu spurningum varðandi útiveru. Hér er gerð grein fyrir niðurstöðum spurninga um heimsóknir 12–15 ára barna og unglinga á þekkta áfangastaði á Íslandi. Niðurstöður benda til þess að eftir því sem börn eldast hafi þau komið á fleiri áfangastaði. Algengast er að svarendur segist hafa komið að Gullfossi, Geysi, á Þingvelli, í Heiðmörk og til Mývatns. Efnahagsleg staða, uppruni foreldra og búseta tengist heimsóknum á suma áfangastaði en þau áhrif eru ekki einhlít. Niðurstöður vekja upp spurningar um ólíka stöðu unglinga til að njóta ferðamennsku og tómstunda, um grundvöll fyrir frekari uppbyggingu félagslegrar ferðamennsku hérlendis og tengsl hennar við menntun og hlutverk skólakerfisins í því sambandi. Reifuð eru álitamál þessu tengd og vörðuð verðug rannsóknarefni á þessu sviði.
More
Translated text
Key words
vinsælum,frístundir
AI Read Science
Must-Reading Tree
Example
Generate MRT to find the research sequence of this paper
Chat Paper
Summary is being generated by the instructions you defined